100 milljarða uppbygging við flugstöðina

Áætlað byggingarmagn við flugstöð Keflavíkurflugvallar á árunum 2021-2028 er á við eina Smáralind, segir Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia, í viðtali við Viðskiptablaðið.

Frétt

Í viðtali við Viðskiptablaðið segir Sveinbjörn Indriðason forstjóri Isavia uppbygginguna sem hafin er á Keflavíkurflugvelli vera löngu tímabæra þar sem lengi hefur legið fyrir að þörf væri á að bæta afkastagetu flugstöðvarinnar.

„Uppbyggingarþörfin er tvíþætt. Annars vegar snýr hún að afkastagetu í flugstöðinni sjálfri og þar er mesti flöskuhálsinn núna. Hins vegar snýr þörfin að flugbrautakerfinu sem er ekki flöskuháls í augnablikinu,“ útskýrir hann. Ákveðið hafi verið að þessum sökum að forgangsraða uppbyggingunni á þann veg að leggja allt kapp á að auka afkastagetu flugstöðvarinnar.

Fyrir faraldur stóð til að fara í mjög stóra framkvæmd á tengibyggingu milli norður- og suðurhluta flugstöðvarinnar. Á sama tíma var byrjað að undirbúa svokallaðan austurvæng sem er bygging sem byggð er við flugstöðina sem snýr í átt að Reykjanesbæ, sem landgöngubrýr raðast svo utan á. „Þegar faraldurinn skall á settumst við hins vegar niður og skiptum þessari framkvæmd upp í tvennt til að draga úr framkvæmdaáhættu. Það stoðvirki sem þegar er risið austan við flugstöðina er fyrri hluti þeirrar framkvæmdar, sem lýkur haustið 2024. Í framhaldinu af því munum við ráðast í það að taka burtu rauðu tenginguna milli flugstöðvabygginganna og reisa stórt mannvirki þar í miðjunni. Það mun væntanlega ekki komast í notkun fyrr en árið 2028,“ segir Sveinbjörn.

Uppbygging á borð við þessa er eins og gefur að skilja langt frá því að vera ókeypis. Aðspurður segir Sveinbjörn að uppbyggingaáætlun flugvallarins geri ráð fyrir að Isavia fjárfesti fyrir meira en 100 milljarða króna í uppbyggingu flugvallarins á næstu 10 árum.

Sveinbjörn segir fjárhagslegan styrkleika Isavia hafa verið það mikinn fyrir faraldur að félagið hefði getað lifað faraldurinn af án þess að hafa þurft á viðbótarfjármagni að halda. „Þá hefðum við aftur á móti ekki getað undirbúið framkvæmdir og fært þær á hönnunar- og síðar framkvæmdastig eins og við höfum gert í dag. Framkvæmdum hefði því seinkað um tvö til þrjú ár. Ákvörðun fjármálaráðherra um auka hlutafé Isavia meðan á faraldrinum stóð var mikilvæg til að geta farið strax af stað.“


Hér má finna viðtalið við Sveinbjörn í heild sinni á vef Viðskiptablaðsins.