Búið að grafa upp tæpa 50 þúsund rúmmetra fyrir viðbyggingu

Frétt

Jarðvinna vegna viðbyggingar á Keflavíkurflugvelli gengur vel, en frá því að fyrsta skóflustungan var tekin í júní hefur verið grafið út fyrir 49.000 rúmmetra holu sem verður á endanum 55.000 rúmmetrar og 7,5 metrar að dýpt.

Þetta segir Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia í samtali við fréttastofu.

Fyrirhuguð bygging verður 20 þúsund fermetrar að stærð og áætlaður heildarkostnaður er 20,8 milljarðar króna. Áformað er að hún verði tekin í notkun árið 2024, en þar verður meðal annars viðbót við verslunarrými og biðsvæði flugstöðvarinnar auk þess sem fjórum nýjum hliðum með landgöngubrúm verður bætt við.

En það er ekki síst endurnýjað farangurskerfi sem markar ákveðin tímamót. Kerfið verður að hluta til í nýju byggingunni en mun teygja sig inn í gömlu bygginguna inn á svæði komufríhafnar.

"Með þessari endurnýjun er verið að skipta út sprengjuleitarvélum vegna nýrra Evrópureglugerða sem taka gildi innan fárra mánaða,“ segir Guðjón.