Ein stærsta framkvæmd næstu ára
Maren Lind Másdóttir, framkvæmdastjóri flugvallarþróunar og innviða hjá Isavia, ræddi uppbyggingu Keflavíkurflugvallar í fréttum Sýnar.

Tengibyggingin sem stækkar suðurbyggingu Keflavíkurflugvallar til norðurs er stærsta verkefnið sem framundan er á vellinum. Kostnaður verksins verður um 22 milljarðar króna og verður þetta ein stærsta framkvæmd á landinu á næstu árum.
Maren Lind Másdóttir, framkvæmdastjóri flugvallarþróunar og innviða hjá Isavia, ræddi uppbyggingu Keflavíkurflugvallar í fréttum Sýnar í gær.
„Þessi tengibygging á að tengja saman þessa norður- og suðurbyggingu. Við skiptum henni upp í tvo fasa. Fyrsti fasinn er það sem við erum að áforma að byrja á núna á þessu ári, 2026, og stefnum á að klára 2031,“ segir Maren.

Með henni á að skapa stórt og bjart rými sem á að verða hjarta flugstöðvarinnar.
„Bæði að það sé rýmra á hliðunum okkar, sem verður klárlega í þessari tengibyggingu. En líka að það sé einhver afþreying í boði og að farþegar geti nálgast verslanir og veitingar með stuttum vegalengdum,“ segir Maren.
Þá muni langi gangurinn milli suður- og norðurbygginga hverfa. „Þessi langi gangur verður orðinn mjög stuttur. Hann fer ekki allur við þennan fyrsta fasa í þessari framkvæmd en að megninu til fer hann.“

Tengibyggingin verður fullbyggð tæpir 27 þúsund fermetrar sem er svipað og tónlistarhúsið Harpa við Reykjavíkurhöfn. Grunnflötur hennar verður um 9.500 fermetrar, sem er litlu minna en knattspyrnusalur Egilshallar, samkvæmt lýsingu Isavia.
Byggingin verður 134 metrar á lengd. Það er svipað langt og frá flugstöð Keflavíkurflugvallar og út á langtímabílastæðin. Breiðust verður tengibygginginn 127 metrar, sem er álíka og Harpa er horn í horn.
Nánar er fjallað um bygginguna og uppbyggingu á Keflavíkurflugvelli í þáttaröðinni Flugþjóðinni, sem kemur í sýningu fljótlega á Sýn.