Hófleg fjölgun farþega 2025
Tæplega 8,4 milljónir farþega munu ferðast um Keflavíkurflugvöll (KEF) árið 2025 samkvæmt farþegaspá flugvallarins fyrir árið. Gert ráð fyrir 0,8% fjölgun farþega á milli ára. Spáin gerir ráð fyrir 3% fjölgun erlendra ferðamanna milli ára, þeir verði rúmlega 2,32 milljónir.

Tæplega 8,4 milljónir farþega munu ferðast um Keflavíkurflugvöll (KEF) árið 2025 samkvæmt farþegaspá flugvallarins fyrir árið. Gert ráð fyrir 0,8% fjölgun farþega á milli ára. Spáin gerir ráð fyrir 3% fjölgun erlendra ferðamanna milli ára, þeir verði rúmlega 2,32 milljónir.
Tæplega 8,4 milljónir farþega munu ferðast um Keflavíkurflugvöll (KEF) árið 2025 samkvæmt farþegaspá flugvallarins fyrir árið. Árið 2024 fóru tæplega 8,3 milljónir um flugvöllinn og er því gert ráð fyrir 0,8% fjölgun farþega á milli ára. Spáin gerir ráð fyrir 3% fjölgun erlendra ferðamanna milli ára, þeir verði rúmlega 2,32 milljónir eða um 9 þúsund fleiri en þeir voru metárið 2018.
Farþegaspá KEF fyrir 2025 gerir ráð fyrir að 8,37 milljónir farþega fari um Keflavíkurflugvöll. Aðeins tvisvar hafa farþegarnir verið fleiri, 8,76 milljónir 2017 og 9,80 milljónir 2018. Árið 2024 voru farþegarnir tæplega 8,30 milljónir og því gert ráð fyrir 0,8% fjölgun á milli ára. Ef litið er til einstaka mánaða þá verður mest fjölgun farþega á milli ára í apríl, 16,7%, og í maí, 7,1%.

Yfir sumarmánuðina munu 26 flugfélög fljúga áætlunarflug til 92 áfangastaða og 21 flugfélag til 70 áfangastaða yfir vetrarmánuðina. Áætlað er að hlutfall tengifarþega verði um 30% af heildar farþegafjölda sem er svipað og það var 2024. Tengifarþegar eru farþegar sem nýta KEF sem tengistöð án þess að dvelja á Íslandi.
Samhliða farþegaspánni var einnig unnin spá um fjölda erlendra ferðamanna sem muni koma til Íslands árið 2025 og einnig fjölda Íslendinga sem ferðast út fyrir landsteinana.

Samkvæmt spánni munu ríflega 2,32 milljónir erlendra ferðamanna koma til Íslands í gegnum KEF árið 2025. Það er tæplega 9 þúsund farþegum meira en metárið 2018 og því stefnir í nýtt metár í komum erlendra ferðamanna til landsins. Á nýliðnu ári voru þeir um 2,26 milljónir og því gert ráð fyrir 3,0% aukningu á milli ára. Mest verður fjölgunin í apríl (16,6%), maí (10,8%) og í júní (6,1%).
Ferðalög Íslendinga til útlanda munu aukast um 1% á milli ára. Spáin gerir ráð fyrir um 612 þúsund íslenskum ferðamönnum á leið til útlanda, sem jafngildir því að hver landsmaður fari að meðaltali um 1,6 sinnum til útlanda yfir árið.