Isavia semur við Ístak um nýja akbraut, burðarvirki og veðurkápu nýrrar austurálmu

Isavia undirritaði í dag samninga við Ístak um gerð nýrrar 1.200 metra akbrautar fyrir flugvélar á Keflavíkurflugvelli og næsta áfanga nýrrar austurálmu Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar.

Frétt

Ístak átti hagkvæmustu tilboðin en verkin voru boðin út á Evrópska efnahagssvæðinu. Heildarkostnaður við bæði verkin er áætlaður um 24,6 milljarðar.

Nýja akbrautin tengir flugbraut við hlað flugstöðvarinnar og er henni ætlað stuðla að bættri nýtingu óháð ytri skilyrðum og greiða fyrir umferð flugvéla eftir lendingu. Hluti af verkinu er uppsetning ljósabúnaðar. Áætlað er að verkinu ljúki fyrir lok næsta árs. Tilboð Ístaks í verkið nam rúmlega 940 milljónum króna.

Lokið er jarðvinnu fyrir nýja austurálmu Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar, sem Ístak annaðist. Fyrirtækið átti hagstæðasta tilboð í burðarvirki og veðurkápu hússins, tæpa 4,5 milljarða króna. Byggingin er þrjár hæðir og 21 þúsund fermetrar. Burðarvirkið skiptist í djúpan steyptan kjallara sem hýsir færibandasal. Á fyrstu hæð verður stækkun á töskusal fyrir ný færibönd. Verslunar- og veitingasvæði ásamt biðsvæðum farþega stækka um 4000 fermetra. Miðað er við að þessum áfanga ljúki næsta vor.

Þetta er mikilvægur áfangi í þróun Keflavíkurflugvallar. Þessi nýja akbraut greiðir mjög fyrir umferð flugvéla. Tíminn frá lendingu að flughlaði styttist sem dregur úr umhverfisáhrifum vegna útblásturs. Þá mun öryggi umferðar á vellinum aukast enn með þessari upplýstu akbraut. Svo er gott að sjá að vinna við austurálmuna er á áætlun. Hún verður að sama skapi gríðarlega mikilvæg viðbót við flugstöðina,

Sveinbjörn Indriðasonforstjóri Isavia.

Þetta eru spennandi verkefni. Við höfum öðlast mikla og dýrmæta reynslu við að vinna að uppbyggingarverkefnum hér á Keflavíkurflugvelli, nú síðast við fyrstu áfanga austurálmu flugstöðvarinnar, sem við höldum nú áfram með. Svo hefjumst við handa úti á vallarsvæðinu. Um 80-100 manns munu vinna að þessum tveimur verkefnum. Við notum að hluta efni sem fallið hefur til við aðrar framkvæmdir á svæðinu. Það sparar peninga og dregur úr umhverfisáhrifum.

Karl AndreassenFramkvæmdastjóri Ístaks.