Samið við breska fyrirtækið MACE vegna framtíðaruppbyggingar Keflavíkurflugvallar

Isavia hefur gert langtímasamning við breska byggingar- og ráðgjafafyrirtækið Mace um verkefnaumsjón og verkeftirlit vegna fyrirhugaðra framkvæmda við stækkun Keflavíkurflugvallar.

Frá undirritun samningsins við MACE
Frétt

Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia, og Jason Millett, rekstrarstjóri hjá Mace, undirrituðu samning þess efnis í Flugstöð Leifs Eiríkssonar mánudaginn 16. desember 2019, m.a. að viðstöddum Michael Nevin, sendiherra Bretlands á Íslandi.

Mace hefur umfangsmikla reynslu af stórframkvæmdum við flugvelli víða um heim, þar á meðal á Heathrow-flugvelli í London, Schipol-flugvelli í Amsterdam og flugvöllunum í Dublin, Manchester, Doha, Mumbai og Sydney.

Í ljósi mikilvægis þess að sækja hæfan samstarfsaðila í þau stóru verkefni sem framundan eru á Keflavíkurflugvelli var farið í ítarlegt og afar vandað valferli sem staðið hefur yfir í rúmt ár. Gerð var krafa um yfirgripsmikla þekkingu og reynslu bjóðenda hvað varðar sambærileg verkefni á stórum alþjóðlegum millilandaflugvöllum. Þá var gerð krafa um að bjóðendur yrðu á líftíma samningsins í samstarfi við innlendan aðila og í tilfelli Mace þá valdi félagið verkfræðistofuna Verkís til samstarfs. Á endanum stóð valið milli þriggja alþjóðlegra bjóðenda sem allir uppfylltu hæfið, en eins og fram hefur komið þá varð Mace, í samstarfi við verkfræðistofuna Verkís, fyrir valinu.

Við hjá Isavia höfum lagt í mikla vinnu við að velja öflugan samstarfsaðila til að leiða þetta mikilvæga verkefni og það hefur mikla þýðingu fyrir Isavia að fá þekkingu og reynslu Mace að borðinu. Þessi samningur er lykilskref í átt að þeim miklu framkvæmdum sem nauðsynlegt er að ráðast í á flugvellinum til að viðhalda og fjölga flugtengingum til og frá Íslandi.

Sveinbjörn IndriðasonForstjóri Isavia.

Mace mun annast verkefnaumsjón og verkeftirlit vegna komandi framkvæmda við m.a. byggingu austurálmu sem er nýr landgangur til austurs og byggingu á nýrri flugstöðvarbyggingu. Þá mun félagið einnig veita ráðgjöf við aðrar framkvæmdir Isavia á Keflavíkurflugvelli, þar á meðal við tengibyggingu vegna breikkunar á landgangi milli norður- og suðurbyggingar flugstöðvarinnar. Fyrsta verkefni félagsins verður að veita ráðgjöf við tengibygginguna, en ráðgert er að framkvæmdir við hana muni hefjast á næsta ári. Enn er talsvert í að framkvæmdir við austurálmu og nýja flugstöð geti hafist enda kalla framkvæmdir af þeirri stærðargráðu á nokkurra ára undirbúningsvinnu.

Ég er himinlifandi yfir tækifæri Mace til að leiða verkefnaumsjón og verkeftirlit yfir þeim framkvæmdum sem framundan eru á Keflavíkurflugvelli. Við fáum hér tækifæri til að vera hluti af miklu umbreytingarverkefni þar sem sú sérfræðiþekking sem við höfum aflað okkur um allan heim kemur að góðum notum við að byggja upp flugvöll, í samstarfi við Isavia, sem styður við vöxt og tækifæri fyrir gjörvallt Ísland.

Jason MillettRekstrarstjóri hjá Mace.