Stöðug þróun byggir á þekkingu og nýjum lausnum

Þróun og rekstur innviða á alþjóðaflugvelli er krefjandi verkefni sem byggir á hæfileikaríku og metnaðarfullu starfsfólki sem nýtir nýjustu þróun og tæknilausnir í mannvirkjagerð.

Frétt

„Keflavíkurflugvöllur er í stöðugri þróun og má segja að á hverju ári sé þar í gangi eitt stærsta innviðaverkefni landsins, en við erum að fjárfesta fyrir 10-12 milljarða á ári í þróun hans. Tilgangurinn er að auka gæðin svo gestir flugvallarins geti notið þjónustu og upplifunar eins og best verði á kosið,“ segir Maren Lind Másdóttir, framkvæmdastjóri flugvallarþróunar og innviða á Keflavíkurflugvelli. Viðtal við hana birtist í sérblaði Viðskiptablaðsins um Verk og vit ráðstefnuna.

Maren segir þróun og rekstur innviða á alþjóðaflugvelli vera krefjandi verkefni sem byggi á hæfileikaríku og metnaðarfullu starfsfólki sem nýtir nýjustu þróun og tæknilausnir í mannvirkjagerð.

„Stöðugar og umfangsmiklar framkvæmdir á alþjóðaflugvelli skapa áskoranir sem finnast varla annars staðar. Það er eitt að hanna og reisa 25.000 fermetra byggingu, en það er allt annað að gera það á starfandi flugvelli, þar sem taka þarf tillit til reksturs vallarins, flugumferðar og flugöryggis meðan á öllu stendur. Við erum líka að byggja við og uppfæra mannvirki sem eru til staðar og það er líka áskorun, því gæta þarf að því að allt passi þetta nú saman þegar upp er staðið,“ segir hún.

Maren segir best að mæta áskorunum sem þessum eins snemma í ferlinu og hægt er. „Þegar við skipuleggjum verkefni þá horfum við á heildartímalínu þeirra en líka samspil við og áhrif á önnur verkefni eða viðhald og rekstur flugvallarins.“ Hún bendir líka á að á flugvellinum sé samfélag rekstraraðila og annarra hagaðila sem geti orðið fyrir áhrifum framkvæmda og muni nýta afrakstur þeirra. „Það er mikilvægt að þeir séu vel upplýstir í gegnum ferlið og geti komið sínum ábendingum á framfæri. Við vinnum þetta samkvæmt svokallaðri ORAT-aðferðarfræði (e. Operational Readiness, Activation & Transition) og er meginmarkmiðið að tryggja að þegar framkvæmd lýkur séu ferlar uppfærðir og starfsfólk tilbúið fyrir rekstur í samræmi við væntingar,“ segir Maren.

Þrívíddartækni eykur gæði framkvæmda

Nýjar tæknilausnir leika líka stórt hlutverk við þróun KEF. „Allt frá árinu 2015 höfum við til dæmis lagt mikla áherslu á að tileinka okkur bestu tæknilausnir í þrívíddarhönnun. BIM aðferðafræðin (e. Building Information Modeling) er mikilvæg í okkar hönnunar- og framkvæmdavinnu. Hún byggir á því að upplýsingar verkefnis séu samhæfðar og öllum aðgengilegar. Þegar þrívíddartólin eru notuð á réttan hátt af hæfileikaríku fólki getur hún ekki aðeins sparað tíma og peninga, heldur bætt verulega gæði hönnunarinnar og ekki síður framkvæmdarinnar á meðan henni stendur.“ Framkvæmdasvæði eru mynduð reglulega með þrívíddarskanna og myndirnar bornar saman við þrívíddarhönnunina. „Þannig er hægt að grípa árekstra, t.d. ef tvær lagnir rekast á, mun fyrr og koma í veg fyrir mistök,“ segir Maren og bætir við: „Þróunin hefur verið svo hröð að núna skönnum við bara rými þegar við göngum um það. Við höfum grínast með að við séum í raun eins og Google Maps bíll sem fer um vinnusvæðið.“

Hluti af menningunni að innleiða nýjar lausnir

Maren segir að í raun sé að verða til atvinnugrein innan byggingargeirans, sem snýst bara um nýjar aðferðir, tækni og kerfi. „Það er hluti af okkar menningu að tileinka okkur allt sem getur stuðlað að enn betri árangri,“ segir hún. „Það var mikil framsýni hjá þeim sem tóku ákvörðun árið 2015 um að leggja áherslu á þrívíddartæknina. Við höfum líka verið frumkvöðlar í að innleiða ORAT á Íslandi og fleiri nýjungar. Fyrir vikið búum við sem fyrirtæki nú að það mikilli þekkingu og reynslu á þessu sviði, að til okkar leita stofnanir og fyrirtæki sem vilja tileinka sér nýjar aðferðir og tæknilausnir. Að sjálfsögðu tökum við alltaf vel í slíkt, enda mikilvægt að við sem störfum í þessum bransa hér á landi deilum þekkingu okkar og reynslu – við græðum öll því.“

Einstakur vinnustaður

„Það sem er skemmtilegast við þetta starf er að vinna með fólki sem býr yfir framúrskarandi þekkingu á sínu sérsviði og kann að nýta hana. Það er enginn vinnustaður sem býður upp á jafn fjölbreytt og skemmtileg verkefni á sviði hönnunar, framkvæmda og rekstrar mannvirkja – við erum lánsöm að fá að vinna hér,“ segir Maren sem hefur starfað á Keflavíkurflugvelli frá 2012. Verkefnin á alþjóðaflugvelli eru ótrúlega margvísleg, ekki aðeins nýframkvæmdir eða stækkun þeirra sem fyrir eru, heldur allt sem viðkemur rekstri og viðhaldi innviða flugvallarins. „Stóru framkvæmdirnar fá alltaf mesta plássið í miðlunum, en við erum í stöðugri vinnu við akbrautir fyrir flugvélarnar, flugvélastæði, farangursflokkunarkerfi, þjónustulausnir og svo mætti lengi telja – að ógleymdu viðhaldinu, sem er mikið og gríðarlega mikilvægt eins og gefur að skilja.“