Bæjarins beztu opnar þriðja pylsuvagninn á Keflavíkurflugvelli
![](/_next/image?url=https%3A%2F%2Fimages.prismic.io%2Fkefplus%2F6582ec8f531ac2845a26d0bf_BB22.jpg%3Fauto%3Dformat%26crop%3Dfaces%252Cedges%26fit%3Dcrop%26w%3D1280%26h%3D720&w=3840&q=80)
Bæjarins beztu pylsur hafa opnað sinn þriðja sölustað á Keflavíkurflugvelli – nú í brottfararsal flugvallarins við vegabréfaeftirlitið. Fyrirtækið hefur rekið útibú í verslun 10-11 í komusal flugavallarins síðan árið 2021 og í sumar bættist við pylsuvagn á biðsvæði í suðurbyggingu sem farþegar á leið til Bretlands, Bandaríkjanna og annarra landa utan Schengen fara um.
Pylsuvagninn er opnaður í svokölluðu „pop-up“ rými og verður þar til eins árs. Pylsuvagnar Bæjarins beztu hafa verið einstaklega vinsælir meðal gesta flugvallarins. Með opnun nýja pylsuvagnsins í brottfararsal geta nú allir gestir átt tækifæri að gæða sér á einni með öllu á leið til útlanda.
„Pylsuvagninn sem opnaði í sumar hefur algjörlega slegið í gegn og Bæjarins beztu peysurnar og bolirnir hafa notið mikilla vinsælda hjá ferðamönnum. Pylsurnar eru ekki aðeins gómsætar heldur hentar afgreiðsluhraðinn einstaklega vel fyrir fólk á hraðferð. Við erum ánægð að geta nú aukið framboðið með nýjum vagni í brottfararsal,“ segir Gunnhildur Erla Vilbergsdóttir, deildarstjóri verslana og veitinga hjá Isavia.
Staðir Bæjarins beztu í heild eru því orðnir 11 talsins. Sjö á höfuðborgarsvæðinu og fjórir á Suðurnesjum.