Breytingar á komusvæði
Umtalsverðar framkvæmdir hefjast fljótlega á komusvæði Keflavíkurflugvallar. Um er að ræða svæðið þar sem svokallaður tollagangur er, en það er gangurinn sem flugvallargestir ganga við komu til landsins á leið sinni úr töskusal, og svæðið þar fyrir framan.

Breytingarnar munu hafa í för með sér tímabundið rask en markmiðið með þeim er að bæta flæði og auknum þægindum fyrir flugvallargesti. Þjónusta bílaleiga og rútufyrirtækja færist til og verður saman á endurhönnuðu svæði auk þess sem þægindavöruverslun á komusvæðinu stækkar.
Áætluð verklok eru á vormánuðum 2026.
Hægt er að lesa meira um breytingarnar hér.