Bætt komusvæði með vorinu

Umtalsverðar endurbætur standa yfir á komusvæði Keflavíkurflugvallar. Svæðið sem um ræðir er að miklu leyti eitt elsta óbreytta svæðið í flugstöðinni. Það hefur lítið breyst í áratugi en sístækkandi umsvif flugvallarins kalla á að nú verði breytingar gerðar.

Horft inn tollganginn, úr töskusal. Eftir að göngu um tollagang lýkur er komið í komusal flugstöðvarinnar.
Frétt

Umtalsverðar endurbætur standa yfir á komusvæði Keflavíkurflugvallar. Í liðinni viku hófust framkvæmdir við nýja og endurbætta afgreiðslu fyrir bílaleigur flugstöðvarbyggingunni og skömmu áður höfðu framkvæmdir við svokallaðann tollagang hafist. Þá er framkvæmdum nýlega lokið við nýja þægindavöruverslun sem opnaði í komusal flugstöðvarinnar fyrir jól og samhliða þessu er unnið að því að stækka anddyri flugstöðvarinnar, komumegin. Allt er þetta gert með það að markmiði að bæta flæði og auka þægindi flugvallargesta sem og þeirra sem starfa á flugvellinum.

Svæðið sem um ræðir er að miklu leyti eitt elsta óbreytta svæðið í flugstöðinni. Það hefur lítið breyst í áratugi en sístækkandi umsvif flugvallarins kalla á að nú verði breytingar gerðar. Áhersla er lögð á að framkvæmdirnar hafi sem minnst áhrif á gesti og starfsemi flugvallarins þó að tímabundið rask sé að einhverju leyti óhjákvæmilegt.

Á meðan á framkvæmdum við bætta aðstöðu fyrir bílaleigur stendur hefur afgreiðsla þeirra verði færð í tímabundna aðstöðu rétt fyrir utan flugstöðina. Gert er ráð fyrir að framkvæmdum við þær ljúki með vorinu þegar nýjar afgreiðslur verða teknar í notkun. Um leið fjölgar bílaleigum sem eru með aðstöðu inni í flugstöðinni úr þremur í fjórar.

Ætluð verklok annarra framkvæmda eru einnig á vordögum.

Nánari upplýsingar uppfærslu á komusvæði er að finna hér.