Jómfrúin er ferðbúin!

Hin eina sanna Jómfrú hefur opnað veitingastað sinn á Keflavíkurflugvelli.

Frétt

Hin eina sanna Jómfrú hefur opnað veitingastað sinn á Keflavíkurflugvelli. Jómfrúin, sem er mörgum landsmönnum að góðu kunn, býður upp á danskt smurbrauð en einnig klassíska heita rétti, úrval af kökum og tertum og auðvitað alls kyns drykki.

„Það eru mjög spennandi tímar framundan hjá Jómfrúnni. Ég hef lengi haft mikinn áhuga á rekstri á flugvellinum og það er mín skoðun að veitingastaður eins og Jómfrúin eigi mjög vel heima í þessu flugvallarumhverfi. Undanfarin ár hef ég fylgst með nýjum áherslum, bæði á Kastrup flugvelli og Gardermoen, og mér finnst það flott nálgun að upplifun fólks af borginni sem það heimsækir geti teygt sig til flugvallarins. Keflavíkurflugvöllur er aðalgáttin að Íslandi en völlurinn er einnig hliðið að Reykjavík, þar sem minn staður hefur starfað með stolti í bráðum 28 ár. Við Jómfrúarfólk hlökkum til að bjóða flugvallargestum upp á hina heilögu þrenningu; smubrauð, öl og snaps,“ segir Jakob E. Jakobsson, eigandi Jómfrúarinnar.

Klassískar smurbrauðssneiðar, eins og egg & rækjur, rauðspretta og roast beef, verða allar á sínum stað. Úrval af bjór á dælu og snöfsum verður þar að sjálfsögðu einnig og hægt að panta með smurbrauðinu – eða eitt og sér. Það er því kjörið að eiga notalega stund á Jómfrúnni fyrir flug en fyrir þau sem ekki hafa tíma til þess verður einnig hægt að fá tilbúnar smurbrauðsneiðar sem grípa má með sér, hratt og auðveldlega.

Það er alþjóðafyrirtækið SSP sem sér um rekstur Jómfrúarinnar á Keflavíkurflugvelli en fyrirtækið sérhæfir sig í rekstri veitingastaða á flugvöllum og rekur yfir 2.600 slíka staði víða um heim.

„Við hjá SSP erum gríðarlega ánægð með að standa að opnun Jómfrúarinnar á Keflavíkurflugvelli. Að okkar mati er hún virkilega góð viðbót við framboðið sem fyrir er á flugvellinum. Við vonumst til þess að flugfarþegar grípi tækifærið til að hefja fríið enn fyrr en ella og komi sér fyrir í notalegu umhverfi sem margir þekkja nú þegar, frá Jómfrúnni í miðborginni.“ segir Jón Haukur Baldvinsson, framkvæmdastjóri SSP á Íslandi.

Veitingastaðurinn Jómfrúin hefur þegar verið opnaður og er staðsettur við hliðina á gleraugnaversluninni Eyesland, þar sem verslunin Penninn/Eymundsson var áður.