Opinn kynningarfundur um umhverfismat

Mánudaginn 3. apríl kl. 20 í Hljómahöll

Frétt

Isavia býður til opins kynningarfundar á umhverfismati á áformum um þróun og uppbyggingu Keflavíkurflugvallar í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ mánudaginn 3. apríl næstkomandi kl. 20:00. Einnig verður beint streymi frá fundinum á vef Víkurfrétta. Auk umhverfismatsins verður farið yfir áform um framkvæmdir á Keflavíkurflugvelli næstu tíu árin og þau markmið sem þeim er ætlað að ná.

Þær framkvæmdir sem Isavia áformar á Keflavíkurflugvelli á komandi árum hafa það að markmiði að bæta innviði og aðstöðu þannig að flugvöllurinn geti tryggt betri þjónustu og upplifum farþega. Áformin fela meðal annars í sér umtalsverða stækkun flugstöðvarbygginga, byggingu bílastæðahúss, bætta aðkomu að flugvellinum, nýtt svæði fyrir flugfrakt og umbætur sem munu auka skilvirkni núverandi tveggja flugbrauta. Framkvæmdirnar snúast þannig um að Keflavíkurflugvöllur geti með góðu móti tekið á móti þeim fjölda farþega sem farið hefur um völlinn þegar mest er og til að mæta þeirri fjölgun farþega sem fyrirséð er að verði á næstu tíu árum.

Isavia hvetur öll til að mæta á fundinn og kynna sér áform um uppbyggingu og þróun Keflavíkurflugvallar og mat á umhverfisáhrifum þeirra. Fundurinn verður í salnum Stapa í Hljómahöll og opnar húsið klukkan 19:30. Fundurinn verður einnig í beinu streymi á vef Víkurfrétta.

Umhverfismatsskýrslan er aðgengileg á vef Skipulagsstofnunar og er frestur til að skila inn umsögnum til 2. maí næstkomandi. Nánari upplýsingar um umhverfismatsskýrsluna og þróun Keflavíkurflugvallar er að finna í tenglunum hér að neðan.

Viltu vita meira um þróun og framtíðarsýn Keflavíkurflugvallar?