Í vinnslu

Ný og betri aðstaða fyrir bílaleigur 

Frekari framkvæmdir eru fram undan í komusal flugvallarins í kjölfars útboðs á rekstri bílaleigna í KEF. Framkvæmdirnar eru hafnar og munu standa yfir fram á vor 2026. Breytingarnar snúa að aðstöðu fyrir bílaleigur sem staðsett er í norðausturhorni komusalsins, en tímabundin aðstaða fyrir afgreiðslu bílaleiga hefur verið reist með gámaeiningum.

Í kjölfar útboðs sem lauk í desember 2025 verður gerð veruleg breyting á aðstöðu fyrir bílaleigur á KEF. Fjöldi rekstraraðila mun aukast úr þremur í fjóra, eftir að þrír rekstraraðilar hafa haft aðstöðu í flugstöðinni síðustu tuttugu ár. Hönnun á svæðinu fylgir stefnu nýrra úrbóta á svokölluðum tollagangi, með það að markmiði að bæta þjónustu og upplifun fyrir bæði gesti og starfsfólk. 

Breytingar gætu haft í för með sér tímabundið rask fyrir gesti flugvallarins og starfsfólk bílaleigna sem halda úti rekstri í komusalnum. Um er að ræða svæði flugvallarins sem hefur að mestu staðið óbreytt síðustu áratugi og því tímabær uppfærsla á innviðum vallarins.

Hægt er að lesa meira um breytingar á tollagangi hér.