Framkvæmdir í austurálmu á góðu flugi
![Austurálma feb. 24](/_next/image?url=https%3A%2F%2Fimages.prismic.io%2Fkefplus%2FZfRsNHYkiKrtlJsZ_2.jpg%3Fauto%3Dformat%26crop%3Dfaces%252Cedges%26fit%3Dcrop%26w%3D1280%26h%3D720&w=3840&q=80)
Framkvæmdir í nýrri austurálmu flugstöðvarinnar ganga vel og með vorinu mun huti af annarri hæð álmunnar opna með nýju veitingasvæði í brottfararsal. Um mitt síðasta ár opnaði fyrsti hluti álmunnar þegar nýtt farangursflokkunarkerfi í kjallara var tekið í notkun sem og nýr komusalur með farangursmóttöku fyrir farþega.
Sem áður segir mun nýtt veitingasvæði opna með vorinu og í haust verður öll önnur hæð álmunnar opna með fjórum nýjum landgöngum og nýju rútuhliði. Þá mun farþegasvæðið einnig stækka til muna og ný salerni verða tekin í notkun samhliða.
Austurálman felur í sér nærri 30% stækkun flugstöðvarinnar og er hún lykilþáttur í framtíðarþróun flugvallarins.
Nánari upplýsingar um austurálmuna og hlutverk hennar í framþróun flugvallarins má finna hér.
![](/_next/image?url=https%3A%2F%2Fimages.prismic.io%2Fkefplus%2FZfRsNnYkiKrtlJsb_6.jpg%3Fauto%3Dformat%26crop%3Dfaces%252Cedges%26fit%3Dcrop%26w%3D1000%26h%3D563&w=2048&q=80)
![](/_next/image?url=https%3A%2F%2Fimages.prismic.io%2Fkefplus%2FZfRsNXYkiKrtlJsa_10.jpg%3Fauto%3Dformat%26crop%3Dfaces%252Cedges%26fit%3Dcrop%26w%3D1000%26h%3D563&w=2048&q=80)