Ný útkeyrsla af flugvallarsvæði

Nýr vegur bætir flæði og öryggi umferðar við flugstöðina

Ný útkeyrsla
Ný útkeyrsla af flugvallarsvæðinu er merkt með grænum lit á myndinni
Frétt

Nýr vegur verður tekinn í notkun fimmtudaginn 27. nóvember við Keflavíkurflugvöll og er þar með hægt að aka nýja leið út af flugvallarsvæðinu.

Með þessum nýja vegi verður til ný leið út af flugvallarsvæðinu. Þetta er jafnframt fyrsti áfangi í þróun svokallaðrar hringtengingar sem hefur þann tilgang að bæta bæði öryggi og flæði við flugstöðina í takti við vaxandi umsvif.

Hingað til hefur vegurinn fyrir framan flugstöðvarbygginguna endað við komufarþegasvæði, þar sem ekið er inn og út af P2 bílastæðinu. Nýi vegurinn liggur frá þeim stað og til norðausturs að Reykjanesbrautinni.

Með þessari breytingu má draga úr umferð næst flugstöðinni og koma í veg fyrir þveranir ökutækja yfir akreinar. Þá mun öll þjónustuumferð, svo sem umferð vegna framkvæmda og flutninga með aðföng fara fram um aðra aðkomu að flugstöðinni.

Með opnuninni lýkur fyrsta áfanga framkvæmda við hringtenginguna en þær hafa staðið yfir frá vorinu 2025.

Viltu vita meira?